Á hverju ári berast Sparisjóðnum fjöldi styrkbeiðna. Til þess að geta betur haldið utan um styrkjamál sín biðjum við umsækjendur að fylla út styrkumsókn hér á vefnum. Varðandi tímasetningar styrkbeiðna viljum við benda á að styrkjanefndin kemur saman á tveggja vikna fresti yfir vetrartímann, og eftir þörfum yfir sumartímann. Við viljum því biðja umsækjendur að senda umsóknir inn tímanlega. Styrkjanefnd Sparisjóðsins áskilur sér rétt til að taka 2-4 vikur til að fjalla um og taka ákvarðanir um styrkbeiðnir
Það er kjarni stefnu Sparisjóðsins að hlúa vel að sínu samfélagi og þar af leiðandi leitast hann við að styrkja verkefni sem samræmast þeirri stefnu. Því biðjum við umsækjendur að segja stuttlega frá áhrifum verkefnisins á samfélagið.
Sparisjóðurinn fagnar samvinnu og frumkvæði og metur mikils styrkbeiðnir sem sýna fram á hvað þátttaka gerir fyrir Sparisjóðinn, hvort sem það er með vinnuframlagi styrkþega, eða með því að styrkja ímynd Sparisjóðsins. Sparisjóðurinn fagnar tillögum að því hvernig hann getur komið fram í tengslum við verkefnið t.d. með auglýsingum, merkingum eða öðrum hætti. Það er alltaf gaman að fá skemmtilegar og öðruvísi hugmyndir að samstarfi!
Til að sækja um styrk eru umsækjendur vinsamlegast beðnir að fylla út rafræna umsóknarformið hér fyrir neðan.


